Viðskipti erlent

Apple eyddi tónlist af tækjum notenda

Samúel Karl Ólason skrifar
Steve Jobs, einn af stofnendum Apple hafði á sínum tíma áhyggjur af hökkurum.
Steve Jobs, einn af stofnendum Apple hafði á sínum tíma áhyggjur af hökkurum. Vísir/AFP
Tæknirisinn Apple hefur eytt tónlistarlögum sem eigendur iPoda höfðu sótt frá öðrum tónlistarveitum en veitum fyrirtækisins. Samkvæmt lögmönnum var þetta gert án þess að láta notendur vita. Þessu Réttarhöld standa nú yfir í Bandaríkjunum gegn Apple þar sem hópur fólks hefur sakað fyrirtækið um að brjóta gegn samkeppnisákvæðum á árunum 2007 til 2009.

Lögmaðurinn Patrick Coughlin sagði að notendur sem sótt hefðu lög í gegnum aðrar þjónustur hefðu fengið upp villumeldingu við það að tengja iPod við tölvu. Þar hefði þeim verið tilkynnt að nauðsynlegt væri að endurræsa iPodinn á upphafsstillingum. Hann sagði að þegar því ferli væri lokið hefði lögum sem ekki kæmu frá Apple verið hent út.

Farið er fram á að Apple greiði 350 milljónir dala í skaðabætur, eða um 42 milljarða króna.

Þá hefur Wall Street Journal eftir honum að Apple hafi ekki látið notendur sína vita af þessu.

Augustin Farrugia, yfirmaður öryggismála hjá Apple segir þetta hafa verið lögmæta öryggisaðgerð. Hann sagði þetta ekki hafa verið útskýrt fyrir notendum þar sem Apple vildi ekki rugla þá í rýminu.

Hann sagði forsvarsmenn Apple hafa haft áhyggjur af tölvuþrjótum og þessum uppfærslum hefði verið ætlað að eyða mögulegum vírusum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×