Viðskipti erlent

Apple einbeitir sér að stýrikerfum sínum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Uppfærslur á stýrikerfum Apple var miðpunktur kynningar fyrirtækisins á nýjungum sínum.
Uppfærslur á stýrikerfum Apple var miðpunktur kynningar fyrirtækisins á nýjungum sínum. Vísir/Getty
Bandaríski tæknirisinn Apple hélt í dag kynningu á þeim nýjungum sem fyrirtækið mun bjóða upp á næstunni. Lítið var um sprengjur, engin ný tæki eða uppfærslur á þeim tækjum sem fyrir eru voru kynntar en áherslan var á stýrikerfi og betrumbætingu á því sem fyrir var.

Bandaríski vefurinn Mashable renndi yfir það helsta sem kynnt var til leiks í kvöld.

macOS Sierra

Siri, talgervill Apple, mætir til leiks í stýrikerfi Apple fyrir tölvur sínar sem einnig fær nýtt nafn í anda iOS og watchOS. Stýrikerfið mun heita macOS Sierra. Ekki er mikið um stórar uppfærslur en helsta nýjungin er líklega sú að eigendur Apple Watch geta nú læst og aflæst tölvu sinni með úrinu.

iOS10

Nýtt stýrikerfi fyrir síma og spjaldtölvur Apple mætir einnig til leiks í haust. Líkt og með macOS Sierra er lítið um byltingarkenndar breytingar. Helst ber að nefna að Photos-forritið fær andlitslyftingu auk þess sem að lokins verður hægt að eyða þeim forritum sem fylgja með snjalltækjum Apple.

Eigendur iPad 2, 3 og Mini ásamt iPhone 4s þurfa þó að sætta sig við það að hið nýja stýrikerfi mun virka á þessum tækjum.

via GIPHY

Messages

Smáskilaboðaforrit Apple fær fína upplyftingu og búið er að bæta heilum haug af emoji-um. Þá verður hægt að handskrifa skilaboð til vina sinna auk þess sem hægt verður að senda leyniskilaboð sem viðtakandi getur opnað með því að renna fingrinum yfir skilaboðin.

Home

Apple kynnti til sögunnar nýtt forrit sem nefnist Home þar sem sjá má öll þau tæki sem tengd eru við tækið þitt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×