Viðskipti erlent

Apple á of mikið af peningum

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AP
Tæknirisinn Apple, sem setti í gær met í hagnaði á ársfjórðungi, á svo mikið af peningum að forsvarsmenn tæknirisans vita ekki hvað þeir eiga að gera við hann. Á fyrsta ársfjórðungi efnahagsárs fyrirtækisins var hagnaðurinn um 18 milljarðar dala.

Í heildina á fyrirtækið 142 milljarða dala á bók, sem samsvarar tæplega 19 þúsund milljörðum króna. Til samanburðar má benda á að verg landsframleiðsla á Íslandi árið 2013 var 1.873 milljarðar króna. Í rauninni á fyrirtækið 178 milljarða en skuldir þess eru 35 milljarðar.

Sjá einnig: Apple setur met í hagnaði.

Á vef BBC segir að fyrirtækið eignist peninga hraðar en þeir geti eytt þeim. Þá er vandamál, hvernig mögulegt sé að hluthafar græði á þessu peningafjalli.

Stærstu kaup fyrirtækisins voru gerð þegar Apple keypti tónlistarveituna Beats, en það fyrirtæki kostaði 3 milljarða dala. Þar að auki er áætlað að fyrirtækið muni í heildina hafa varið fimm milljörðum í byggingu nýrra höfuðstöðva.

Einhverjir hluthafar hafa farið fram á að Apple kaupi af þeim hlutafé og komi þannig hagnaðinum yfir á hluthafa. Einn þeirra höfðaði mál gegn fyrirtækinu til að fá þessu framgengt.

Á síðasta ári keypti Apple hlutabréf í fyrirtækinu fyrir um 49 milljarða dala.

Fréttaveitan Reuters segir að niðurstöður uppgjörsins, sem kynntar voru í gær, muni auka hraða hlutabréfakaupanna og telja sumir greinendur að fyrirtækið muni jafnvel kaupa hlutabréf fyrir um 200 milljarða dala á árinu.

Gengi Apple hefur hækkað gífurlega í dag, eftir að uppgjörið var kynnt í gær. Á ári hefur gengið hækkað um 39 prósent.


Tengdar fréttir

Apple setur met í hagnaði

Bandaríski tæknirisinn Apple hefur gefið út tölur yfir hagnað á fyrsta ársfjórðungi og er hann átján milljarðar bandaríkjadala.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×