Tónlist

Aphex Twin ásakar Kanye West um stuld

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Aphex Twin.
Aphex Twin.
Raftónlistarmaðurinn Richard D. James, best þekktur sem Aphex Twin, hefur ásakað rapptónlistarmanninn Kanye West um stuld. Píanólag eftir Aphex að nafni Avril 14th er grunnurinn að laglínunni í vinsælu lagi Wests, Blame Game. Aphex fullyrti í viðtali við tónlistarmiðilinn Pitchfork að rapparinn og teymi hans hafi ekki viljað borga honum fyrir notkun á laglínunni.

„Ég veit að hann reyndi að fokking snuða mig og sagðist hafa skrifað laglínuna,“ sagði Aphex, aðspurður um hvað honum fyndist um að Kanye hafi notað lagið hans. „Þeir reyndu að komast upp með það að borga mér ekki neitt,“ segir Aphex. West hefur áður lent í vandræðum fyrir að „sampla“ lög, þ.e. að taka búta og laglínur úr öðrum lögum og nota þau í eigin tónlist.

"Þegar þeir sendu mér lagið fyrst sagði ég: „Ó, ég get gert þetta aftur fyrir ykkur, ef þú vilt,“ af því að þeir höfðu „samplað“ lagið mjög illa. Það var strekkt á hljóðinu og það var mjög brenglað.

Yeezy
Þá sagði ég eitthvað í líkingu við: „Ég skal bara endurspila þetta fyrir ykkur á þessum hraða ef þið viljið.“ Og þeir sögðu ekki einu sinni „halló“ eða „takk“, þeir sögðu bara: „Þú átt þetta ekki – við eigum þetta. Við erum ekki einu sinni að spyrja þig lengur.“

Þó segist Aphex ekki vera viss um hvort í lagi Wests sé „sampl“ af upprunalegu upptökunni, heldur geti verið að West og hans teymi hafi tekið upp píanóspilið aftur. Í bæklingnum fyrir plötuna sem lag Wests kom út á, My Beautiful Dark Twisted Fantasy, kemur þó fram að Blame Game innihaldi „hluta úr Avril 14th eftir Richard James“. West hefur ekki enn svarað ásökunum Aphex Twin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×