Lífið

Anya Shaddock sigurvegari Samfés

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Anya Hrund Shaddock bar sigur úr býtum.
Anya Hrund Shaddock bar sigur úr býtum. Samfés
Anya Hrund Shaddock úr félagsmiðstöðinni Hellinum sigraði í Söngkeppni Samfés sem fram fór í Laugardalshöll í dag.

„Anya sigraði hug og hjörtu allra í troðfullri Laugardalshöll þegar hún söng lagið sitt In the end,“ segir í tilkynningu frá Samfés en í öðru sæti lenti Sara Guðfinnsdóttir úr félagsmiðstöðinni Óðal frá Borgarnesi með lagið We don‘t need to take our clothes of.

Í þriðja sæti var Júlíus Viggó Ólafsson úr félagsmiðstöðinni Skýjaborg en hann flutti lagið Piano man. Þá fékk félagsmiðstöðin 105 sérstök hvatningaverðlaun en þær Snjólaug Vera Jóhannsdóttir, Hulda Kristín Hauksdóttir og Guðlaug Fríða Helgadóttir Folkman tóku frumsamið lag, Sleepwalking.

„Síðast en ekki síst fengu Karen Hekla Grönli, Hlynur Héðinsson, Arnór Bjarki Eyþórsson, Veigar Atli Magnússon, Íbera Sophie Marie Dupont og Katrín Birna Sigurðardóttir úr félagsmiðstöðinni Zelsíuz verðlaun fyrir besta flutning dagsins með laginu Lost Boy. Undankeppnir fóru fram í öllum landshlutum og því má með sanni segja að bestu söngvarar landsins stigu á svið í Laugardalshöll í dag,“ segir í tilkynningunni.

Í dómnefnd sátu Arnar Þór Gíslason, Lára Rúnarsdóttir, Ragna Björg Ársælsdóttir, Rakel Pálsdóttir og Sylvia Erla Melsted.

Söngkeppni Samfés, samtaka félagsmiðstöðva, er hluti af SamFestingnum – stærstu unglingaskemmtun landsins. Rúmlega 3000 áhorfendur lögðu leið sína í Laugardalshöll í dag. Í gærkvöldi fylltu 4.600 unglingar höllina og fylgdust með tónleikum þar sem fram komu DJ AquaDream, DJ Dagur, Hljómsveitin Trausti og Gylfi, Sylvía Erla, Hildur, DJ Sunna Ben, Sturla Atlas, Best of 12:00 ásamt Áttunni og Páll Óskar. 

Úr Laugardalshöll í dag.samfés





Fleiri fréttir

Sjá meira


×