Lífið

Antonio Banderas á Íslandi: Birtir myndir af snævi þöktu landslagi og segir daginn tilvalinn fyrir strandferð

Birgir Olgeirsson skrifar
Antonio Banderas og Nicole Kimpel.
Antonio Banderas og Nicole Kimpel. Vísir/Twitter
Spænski leikarinn Antonio Banderas virðist vera staddur hér á landi ef marka má Twitter-síðu leikarans.

Þar birtir hann mynd af sér og unnustu sinni, hollenska fjárfestingaráðgjafanum Nicole Kimpel, ásamt því að birta loftmynd af Grindavík og íslensku landslagi. Banderas skrifar jafnframt með myndunum að þetta sé fullkominn dagur til að grípa handklæði og halda niður á strönd.

Banderas er 55 ára gamall og hefur leikið í fjölda þekktra kvikmynda. Þar á meðal Philadelphia, Interview with the Vampire, Desperado, Evita, The Mask of Zorro og Spy Kids-myndunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×