Sport

Anton Sveinn komst á pall

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Anton Sveinn synti á 52,28 sekúndum.
Anton Sveinn synti á 52,28 sekúndum. vísir/anton
Anton Sveinn McKee vann til bronsverðlauna í 100 jarda bringusundi á SEC mótinu sem fer fram í Knoxville í Tenesse.

Anton Sveinn synti jardana 100 á 52,28 sekúndum.

Sundmaðurinn öflugi, sem keppti á Ólympíuleikunum í Ríó í fyrra, hefur ekki náð á pall í 100 jarda bringusundi á SEC mótinu áður.  

Anton Sveinn keppir í 200 jarda bringusundi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×