Sport

Anton Sveinn í öðru sæti á sterku háskólamóti

Anton Ingi Leifsson skrifar
vísir/anton
Anton Sveinn McKee synti í A úrslitum á NCAA mótinu í nótt, en Anton Sveinn synti í 200 jarda bringusundi. Sundgarpurinn úr Ægi lenti í sjötta sæti á tímanum 1.52,97.

Hann synti einni sekúndu sneggra í undanrásunum, en eins og fyrr segir lenti hann í sjötta tími. Hann hreppti þó silfurverðlaun í 200 jarda fjórsundi.

Anton Sveinn er hluti af liði Alabama-háskólans á NCAA mótinu, en hann var í boðsundsveit skólans. Þeir settu nýtt skólamet og höfnuðu í öðru sæti. Þeir enduðu í tíu sæti og bættu sig um tvo sæti frá því í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×