Sport

Anton Sveinn bætti metið aftur og vann

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Anton flýgur áfram í vatninu
Anton flýgur áfram í vatninu vísir/anton
Anton Sveinn McKee bætti Íslandsmet sitt 200 metra bringusundi öðru sinni í morgun þegar hann vann sundið á sterku boðsmóti í Los Angeles með 14. besta tíma ársins í greininni.

Anton Sveinn hefur farið mikinn  á mótinu. Hann setti Íslandsmet í 400 metra bringusundi í gær og bætti metið í 200 metra sundinu í undanrásum.

Hann gerði enn betur í úrslitasundinu þegar hann synti á 2 mínútum og 10,72 sekúndum. Hann keppir í 100 metra bringusundi í kvöld og nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×