Sport

Anton Sveinn aftur með met

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Í miklu stuði
Í miklu stuði Vísir/hag
Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee bætti í nótt annað Íslandsmet sitt á jafn mörgum dögum. Anton Sveinn keppir á sterku boðsmóti í Los Angeles og tryggði sig inn í A-úrslit í 200 metra bringusundi á besta tímanum.

Anton Sveinn synti á 2 mínútum og 12,23 sekúndum en fyrra met hans sem var rétt mánaðar gamalt var 2 mínútur og 12,38 sekúndur.

Anton Sveinn setti Íslandsmet í 400 bringusundi í gær og er greinilega í miklu stuði þessa dagana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×