Handbolti

Anton Rúnarsson fór á kostum í sigri Emsdetten

Vísir/Valli
Anton Rúnarsson fór á kostum í liði TV Emsdetten þegar liðið lagði Henstedt-Ulzburg að velli, 28-26.

Anton skoraði sjö mörk fyrir Emsdetten, en Oddur Grétarsson skoraði fjögur. Liðið er með þrjú stig eftir tvo leiki.

Hannes Jón Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir Eisenach og Bjarki Már Elísson eitt þegar liðið tapaði 19-18 fyrir Nordhorn-Lingen á heimavelli í kvöld.

Eisenach er með tvö stig eftir tvo leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×