Handbolti

Anton og Jónas dæma á HM kvenna í Danmörku

Vísir/Samsett mynd
Besta handboltadómarapar landsins, Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson, verða meðal dómaranna á Heimsmeistaramóti kvenna í handbolta sem fer fram í Danmörku.

Flautað verður til leiks í desember en þetta er enn eitt stórverkefnið sem þessir dómarar fá. Anton og Jónas hafa undanfarin ár meðal annars dæmt í stórum landsleikjum sem og stórleiki í Meistaradeild Evrópu en um gríðarlegan heiður að ræða fyrir þá tvo.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Jónas dæmir á Heimsmeistaramóti í fullorðinsflokki en Anton hefur undanfarin ár dæmt á flestum af stórmótum handknattleiksins.

Ísland verður ekki með að þessu sinni en íslenska liðið tapaði gegn Svartfjallalandi 47-38 samanlagt í tveimur leikjum í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×