Sport

Annie Mist og Katrín Tanja hafa báðar þénað yfir 65 milljónir í crossfit

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir, Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir og Annie Mist Þórisdóttir eru allar ofarlega á listanum.
Katrín Tanja Davíðsdóttir, Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir og Annie Mist Þórisdóttir eru allar ofarlega á listanum. Vísir/Daníel
Annie Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir eru þær konur sem hafa þénað mest á mótum á vegum CrossFit sambandsins en The Barbell Spin tók saman tölurnar yfir hæsta verðlaunaféð hjá crossfit stelpunum.

Það er ljóst á þessum tölum að stelpurnar okkar fá vel borgað fyrir að komast í hóp þeirra bestu á heimsleikunum. Það má heldur ekki gleyma að góður árangur skilar líka af sér auglýsingasamningum og betri styrktaraðilum.

Annie Mist Þórisdóttir var sú fyrsta til að vinna heimsleikana tvö ár í röð og hún er sú sem hefur þénað mest á crossfit mótum eða alls 599 þúsund dollara. Það eru meira en 67 milljónir íslenskra króna samkvæmt núverandi gengi.

Katrín Tanja Davíðsdóttir hefur unnið heimsleikana undanfarin tvö ár og hún nálgast óðum Annie Mist á þessum lista. Katrín Tanja hefur fengið 582 þúsund dollara í verðlaunafé sem er um 65 milljónir íslenskra króna.

Annie Mist og Katrín Tanja eru í nokkrum sérflokki á tekjulistanum en þriðja er Sam Briggs með 369 þúsund dollara. Það eru tæpar 42 milljónir og 23 milljónum minna en næsta fyrir ofan hana sem er eins og kunnugt er Katrín Tanja.

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er síðan í sjötta sæti listans með tekjur upp á 135 þúsund dollara eða rúmar fimmtán milljónir íslenskra króna. Sara hefur byrjað tímabilið vel og vann meðal annars The Open í fyrsta sinn á dögunum.

Í greininni á The Barbell Spin kemur fram að verðlaunaféð er að hækka og því gæti góður árangur á árinu 2017 skilað góðu sæti á fyrrnefndum lista þegar CrossFit tímabilið klárast í haust.

Það er hægt að lesa þessa úttekt The Barbell Spin með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×