Sport

Annie Mist missti toppsætið eftir sjósundið | Sara synti hraðast af Íslendingunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir.
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir. Vísir/Daníel
Íslenska crossfit fólkið fékk að glíma við sjósund í fyrstu grein dagsins á heimsleikunum í crossfit og þar gekk mikið á. Allir keppendurnir, 40 karlar og 40 konur, kepptu á sama tíma þannig að þau voru að synda í einum hnapp og á móti ágætis öldum.

Að neðan má sjá upptöku frá keppni í sjósundinu.

Þetta snérist því ekki aðeins um að synda þessa fjarlægð heldur einnig um að þora og hafa betur í baráttu um stöðu í sjónum. 

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir kom fyrst í mark af íslensku keppendunum og var bæði á undan Björgvini Karli Guðmundssyni og hinum þremur íslensku stelpunum, þeim Katrínu Tönju Davíðsdóttur, Þuríði Erlu Helgadóttur og Annie Mist Þórisdóttur.

Eftir fyrstu grein dagsins eru allar íslensku stelpurnar meðal þeirra tuttugu fremstu í heildarkeppninni. 

Annie Mist hefur tvívegis sigrað á heimsleikunum en þurfti að hætta keppni á leikunum í fyrra.Vísir/Stefán
Annie Mist Þórisdóttir var í efsta sæti í kvennaflokki eftir fyrsta daginn í gær en hún varð í 22. sæti í sjósundinu og datt niður um fjögur sæti. 

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir kom fyrst í mark af íslensku stelpunum. Hún varð í fjórða sæti í sjósundinu og hækkaði sig úr 5. sæti í heildarkeppninni upp í sæti fjögur. Ragnheiður Sara ef því efst af íslensku keppendunum eftir fyrstu fjórar greinarnar.

Katrín Tanja Davíðsdóttir náði ellefta besta tímanum og er nú komin upp í tíunda sæti eftir að hafa klikkað í annarri greininni í gær. 

Þuríður Erla Helgadóttir og Lilja Lind Helgadóttir sjást hér á æfingu í gær.Vísir/Valli
Þuríður Erla Helgadóttir varð í 17. sæti í sjósundinu og það skilar henni í 19. sæti í heildarkeppninni. 

Tia-Clair Toomey kom fyrst í mark á 7:28.23 mínútum en Ragnheiður Sara kom í mark á 7:38.22 mínútum eða aðeins tíu sekúndum seinna. 

Tími Katrínar Tönju var 8:42.78 mínútur, Þuríður Erla kom í mark á 8:54.95 mínútum og tími Annie Mist var 9:07.82 mínútur.

Björgvin Karl Guðmundsson varð í sautjánda sæti hjá körlunum en hann kom í mark á 8:12.01 mínútum og var því hálfri mínútu á eftir Ragnheiði Söru. Björgvin Karl hækkaði sig um tvö sæti og er nú í fimmta sæti í heildarkeppninni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×