Sport

Annie Mist fellir tár á blaðamannafundi

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Annie Mist meiddist í baki en hefur átt góða endurkomu í Crossfit-heiminn.
Annie Mist meiddist í baki en hefur átt góða endurkomu í Crossfit-heiminn. Vísir/Stefán
Annie Mist Þórisdóttir lenti í öðru sæti í einstaklingskeppni kvenna á heimsleikunum í Crossfit nú um helgina.

Á blaðamannafundi ræddi hún við ýmsa fjölmiðlamenn um bakmeiðsli sín hrjáðu hana síðasta ár og meinuðu henni að taka þátt í leikunum 2013.

Í ár tók hún hinsvegar þátt að nýju, og hafnaði í öðru sæti, rétt á eftir sigurvegaranum Camille Leblanc-Bazinet.

Á fundinum talar Annie um að hún sé gríðarlega þakklát þeim sem studdu hana gegnum meiðslin, og óttann sem fylgdi þeim.

„Í fyrstu óttaðist ég að geta aldrei gengið framar. Því næst hræddist ég að geta aldrei lyft framar," sagði Annie. „Fólk sagði mér ítrekað að ég gæti þetta, en þrátt fyrir það átti ég erfitt með að telja mér trú um það. Ég lifði einn dag í einu, og gerði það að markmiði mínu að komast aftur hingað. Ég er rosalega ánægð."

Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×