Tónlist

Annasamt ár hjá Björk

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Björk hefur komið víða við á árinu.
Björk hefur komið víða við á árinu. Mynd/Garðar Kjartansson
Árið 2015 hefur verið annasamt hjá tónlistarkonunni Björk Guðmundsdóttur, sem þurfti þó því miður að aflýsa fyrirhuguðum tónleikum sínum síðar í sumar og haust.

Eins og menn muna lak platan Vulnicura út í lok janúar en samhliða því var hún einnig gefin út stafrænt. Vulnicura, sem er áttunda sólóplata Bjarkar og gefin út af One Little Indian, fékk frábæra gagnrýni og margir tala um að þó skammt sé liðið á árið þá verði þetta tvímælalaust ein af plötum ársins. „Mér finnst þetta vera ein af bestu plötum Bjarkar frá upphafi, ákveðin fullkomnun birtist í tónlistarsköpun hennar á þessari plötu. Hún fer í hóp bestu platna ársins hjá mér. Annars á hver og ein plata sitt móment í núinu en út frá mörgu finnst mér þessi plata vera alveg stórkostleg,“ segir Ásmundur Jónsson, útgáfustjóri Smekkleysu.

Björk birti fyrir skömmu tilkynningu á Facebook-síðu sinni þar sem hún útskýrði ástæður þess að hún ákvað að aflýsa fyrirhuguðum tónleikum sínum en tónleikar hennar á Iceland Airwaves-hátíðinni voru á meðal þeirra tónleika sem aflýst var. Í tilkynningunni tjáir tónlistarkonan sig um að það hafi tekið verulega á hana að flytja lögin af plötunni en Vulnicura er að miklu leyti byggð á sambandsslitum hennar við listamanninn Matthew Barney.

Í sömu tilkynningu lýsir hún þakklæti sínu fyrir þetta tónleikaferðalag og þakkar hún öllum samstarfsfélögum sínum og aðdáendum.

Björk segir að platan sé öðruvísi en fyrri verk hennar og tekur einnig fram að óviðráðanlegar ástæður hafi orðið til þess að hætt var við tónleikana.

Í lok tilkynningarinnar segist Björk vera byrjuð að semja nýja tónlist.

Björk sagði í viðtali við Fréttablaðið í apríl tónleikana á Íslandi sér mikilvæga. „Alltaf langmikilvægustu tónleikarnir fyrir mig, þess vegna geri ég þá oftast seinna á túrnum svo allt sé orðið slípað,“ sagði hún spurð út tónleikana sem fyrirhugaðir voru á Íslandi.

Björk segist vera byrjuð að semja nýja tónlist.Vísir/Getty
Vulnicura var mest sótta platan hjá tónlistarveitunni iTunes í vikunni sem hún kom út. Hún var númer eitt í yfir 30 löndum:

Bretland

Argentína

Austurríki

Belgía

Brasilía

Búlgaría

Síle

Kýpur

Tékkland

Danmörk

Eistland

Finnland

Grikkland

Ungverjaland

Írland

Ísrael

Mexíkó

Holland

Noregur

Pólland

Portúgal

Rúmenía

Rússland

Slóvakía

Slóvenía

Spánn

Suður-Afríka

Svíþjóð

Sviss

Víetnam

Frábær gagnrýni í erlendum miðlum

The Guardian 4/5

Reader’s Digest 5/5

Time Out London 4/5

Curious Animal 9/10

Press Play 5/5

NME 8/10

Pitchfork 8,6/10

Rolling Stone 4/5

Spin 8/10

The Telegraph 4/5






Fleiri fréttir

Sjá meira


×