Innlent

Annar starfsmaður Keilis íhugar að höfða mál vegna eineltis

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Konan vann lengi hjá Keili og segir Hjálmar hafa lagt sig í einelti.
Konan vann lengi hjá Keili og segir Hjálmar hafa lagt sig í einelti. vísir/stefán
Annar starfsmaður sem vann hjá Keili íhugar að fara í mál vegna eineltis sem hann telur sig hafa orðið fyrir af hálfu Hjálmars Árnasonar, framkvæmdastjóra Keilis.

Á miðvikudag var sagt frá því í Fréttablaðinu að fyrrverandi starfsmanni Keilis hefðu verið greiddar miskabætur eftir að sálfræðingar komust að þeirri niðurstöðu að Hjálmar hefði lagt starfsmanninn í langvinnt einelti sem hefði haft mikil áhrif á hann.

„Það virðast mikil líkindi vera með þessum tveimur málum,“ segir Steinbergur Finnbogason lögmaður sem annaðist mál mannsins sem fékk greiddar miskabætur. Steinbergur hefur nú tekið að sér eldra mál svipaðs eðlis þar sem kona telur Hjálmar hafa lagt sig í einelti.

„Mér finnst full ástæða til að fara fram á endurupptöku þess máls. Nefndin sem á sínum tíma fjallaði um ásakanir skjólstæðings míns komst að þeirri niðurstöðu á nokkrum dögum að ekki hefði verið um einelti að ræða. Í nefndinni sátu meðal annars stjórnarmenn Keilis og ekki er ólíklegt að það hafi ráðið talsverðu um niðurstöðuna. Í seinna málinu fékkst meint einelti staðfest meðal annars að fengnu sérfræðiáliti sálfræðinga og ég tel fulla ástæðu til að framkoma þessa manns gagnvart skjólstæðingi mínum verði skoðuð á nýjan leik og vonandi vandaðri,“ segir Steinbergur.

Hjálmar Árnason
Konan sem um ræðir vann hjá Keili frá 2007 til 2011. Að hennar sögn hófst eineltið fljótlega eftir að Hjálmar tók við sem framkvæmdastjóri Keilis en konan tók meðal annars þátt í að búa til Háskólabrú við skólann og hafði talsverða reynslu af slíkum störfum. Hún segist vita af öðru starfsfólki sem hrakist hafi frá störfum vegna framgöngu Hjálmars.

Hún segir eineltið hafa lýst sér á þann hátt að í fyrstu var byrjað að minnka við hana vinnu, hún var tekin á fundi þar sem, að hennar sögn, hún var niðurlægð og gert lítið úr henni, hún hunsuð og ekki höfð með í ráðum þrátt fyrir að vera í framkvæmdastjórn fyrirtækisins.

Eftir einn slíkan fund þar sem hún segir Hjálmar hafa niðurlægt sig fyrir framan námsráðgjafa í skólanum, gekk hún út og fór í veikindaleyfi. Þá hafði í millitíðinni systir Hjálmars verið ráðin í hennar stöðu innan skólans. Konan hélt þó launum sínum en vinna var minnkuð hjá henni. Upplifði hún það sem svo að verið væri að reyna að þvinga hana frá störfum.

Konan fór fram á að eineltið yrði rannsakað. Það var gert af þriggja manna ráði þar sem komist var að því á 2-3 dögum, að hennar sögn, að hún hefði ekki orðið fyrir einelti. Eftir það barst henni uppsagnarbréf vegna samskiptaerfiðleika. Eftir að lögfræðingur hennar hafði samband við Keili vegna þess að hún átti ekki að fá uppsagnarfrest borgaðan og sagði félagið eiga von á stefnu var konunni borgaður uppsagnarfresturinn.

Konan segir að eineltið hafi haft mikil áhrif á sig bæði líkamlega og andlega og að hún hafi verið óvinnufær í ár eftir að hún hætti hjá Keili.


Tengdar fréttir

Fékk bætur vegna eineltis Hjálmars

Fyrrverandi starfsmaður hjá Keili fékk miskabætur vegna langvinns eineltis. Sálfræðingar telja að Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, hafi lagt hann í einelti. Hjálmar vill ekki tjá sig um málið en sendi starfsmanninum afsökunarbeiðni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×