Fótbolti

Annar sigur Ólafs og Hannesar í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hannes og félagar fagna eftir leikinn í kvöld.
Hannes og félagar fagna eftir leikinn í kvöld. vísir/getty
Ólafur Kristjánsson og lærisveinar hans í Randers fögnuðu sínum öðrum sigri í röð í dönsku úrvalsdeildinni þegar liðið lagði Horsens að velli með einu marki gegn engu í kvöld.

Viktor Lundberg skoraði eina mark leiksins á 23. mínútu. Bæði lið misstu mann af velli með rautt spjald í seinni hálfleik en það breytti engu um úrslitin.

Kjartan Henry Finnbogason var í byrjunarliði Horsens en honum tókst ekki að skora hjá Hannesi Þór Halldórssyni, fyrrum samherja sínum í KR.

Kjartan skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu í síðustu umferð en hann var í byrjunarliðinu í öðrum leiknum í röð í kvöld. Kjartan var tekinn af velli á 68. mínútu.

Hannes lék sinn þriðja leik fyrir Randers í kvöld og hélt hreinu í fyrsta sinn.

Randers er komið upp í 4. sæti deildarinnar eftir tvo sigra í röð en Horsens er í 9. sætinu með þrjú stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×