Íslenski boltinn

Annar Íslandsmeistaratitill Stjörnunnar í röð | Myndaveisla

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stjarnan tryggði sér í kvöld sinn annan Íslandsmeistaratitil í röð eftir 3-0 sigur á Aftureldingu á Samsung-vellinum í Garðabæ. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði öll mörk Stjörnunnar en hún er langmarkahæst í Pepsi-deild kvenna með 27 mörk.

Stjarnan er búin að vinna 15 af 17 deildarleikjum sínum, en aðeins Breiðabliki hefur tekist að leggja Garðabæjarliðið að velli á þessu tímabili. Stjarnan er einnig ríkjandi bikarmeistari, en liðið vann Selfoss örugglega í úrslitaleik á Laugardalsvelli fyrir nokkrum vikum síðan.

Valgarður Gíslason, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var í Garðabænum í kvöld og smellti af myndum sem má sjá hér að ofan.

Stjörnustúlkur höfðu ástæðu til að gleðjast í kvöld.Vísir/Valli

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×