Sport

Annar bardagi Donald Cerrone á aðeins 15 dögum

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Donald Cerrone er einn allra skemmtilegasti bardagamaðurinn í UFC.
Donald Cerrone er einn allra skemmtilegasti bardagamaðurinn í UFC. Vísir/Getty
Í kvöld mætast þeir Donald Cerrone og Benson Henderson í þriðja sinn. Bardaginn er næstsíðasti bardagi kvöldsins á UFC bardagakvöldinu í Boston en þetta verður annar bardagi Cerrone á aðeins 15 dögum.

Donald ‘Cowboy’ Cerrone ber nafn með rentu en hann er einn allra skemmtilegasti bardagamaðurinn í UFC. Hann klæðist kúrekastígvélum og gengur með kúrekahatt hvert sem hann fer. Hann er villtur kappi og á milli þess sem hann berst stundar hann klettaklifur, sjóbretti og keyrir um á vélsleðum og mótorhjólum, yfirmönnum UFC til mikils ama.

Cerrone barðist síðast þann 3. janúar þegar hann sigraði Myles Jury örugglega. Cerrone var óánægður með bardagann og fannst hann ekki nógu skemmtilegur fyrir áhorfendur. Hann óskaði eftir því að berjast á UFC bardagakvöldinu í Colorado þann 14. febrúar og þótti flestum það full snemmt að berjast svo fljótt aftur.

Skömmu eftir bardagann þann 3. janúar var Benson Henderson án andstæðings eftir að upphaflegi andstæðingur hans meiddist. Cerrone bauðst því til að taka bardagann og verða því aðeins 15 dagar á milli bardaga hjá honum.

Þetta verður í þriðja sinn sem þeir Henderson og Cerrone mætast en nánar má lesa um fyrri bardaga þeirra hér.

Bardaginn í kvöld verður sá sjöundi á innan við 365 dögum hjá Cerrone og er hann einn duglegasti bardagamaðurinn í UFC.  Í lok árs 2013 kvaðst Cerrone vera blankur og vildi því fá að berjast eins oft og mögulegt væri. Það hefur gengið vel en Cerrone sigraði alla bardaga sína á síðasta ári og fékk auk þess þrjá frammistöðubónusa (6,5 milljón kr. hver). Iðulega yfirgefur Cerrone ekki borgina þar sem bardaginn fór fram fyrr en hann sé kominn með næsta bardaga.

Það stefnir allt í frábært bardagakvöld en þeir Conor McGregor og Dennis Siver mætast í aðalbardaga kvöldsins.

Bardaginn fer fram aðfararnótt mánudags og hefst útsending klukkan þrjú um nóttina. Bardagakvöldið verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

MMA

Tengdar fréttir

Á Siver möguleika gegn McGregor?

Í nótt mætir írska stórstjarnan Conor McGregor Þjóðverjanum Dennis Siver. UFC hefur eytt miklu púðri í að kynna bardagann án þess þó að minnast mikið á Dennis Siver.

Conor: Ég mun flengja Siver

UFC kynnti í gær dagskrá sína fyrir 2015 og þarf ekki að koma á óvart að Írinn Conor McGregor hafi stolið senunni á viðburðinum.

UFC 178: Er Alvarez einn besti léttvigtarmaður heims?

Árum saman hefur Eddie Alvarez verið talinn einn besti léttvigtarmaður heims. Hann hefur þó aldrei barist í UFC en á því verður breyting á um helgina. Alvarez mætir Donald Cerrone á UFC 178 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×