Fótbolti

Annað tap Sundsvall í sænsku deildinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Guðni hefur verið í herbúðum Sundsvall frá 2012.
Jón Guðni hefur verið í herbúðum Sundsvall frá 2012. vísir/valli
Jón Guðni Fjóluson var í byrjunarliði Sundsvall sem tapaði 0-2 fyrir Djurgården í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Jón Guðni hefur spilað alla fimm leiki Sundsvall í deildinni frá upphafi til enda en liðið er í 9. sæti með sjö stig.

Rúnar Már Sigurjónsson byrjaði á varamannabekknum en kom inn á sem varamaður á 26. mínútu.

Næsti leikur Sundsvall er gegn Guðlaugi Victori Pálssyni og félögum í Helsingborg 30. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×