Körfubolti

Annað tap Hauks og félaga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haukur Helgi spilaði gríðarlega vel með íslenska landsliðinu á EM í síðasta mánuði.
Haukur Helgi spilaði gríðarlega vel með íslenska landsliðinu á EM í síðasta mánuði. vísir/valli
Haukur Helgi Pálsson skoraði fimm stig og tók þrjú fráköst þegar Mitteldeutscher tapaði með 14 stiga mun, 89-75, fyrir Telekom Baskets Bonn, í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Mitteldeutscher hefur tapað báðum leikjum sínum í deildinni til þessa en á laugardaginn laut liðið í gras fyrir Phoenix Hagen, 72-79. Haukur skoraði 11 stig og tók átta fráköst í þeim leik.

Haukur setti niður eitt skot úr tveimur tilraunum inni í teig í kvöld og þá rataði eitt af þremur þriggja stiga skotum hans rétta leið.

Landsliðsmaðurinn gerði sex vikna samning við Mitteldeutscher í lok september en möguleiki er á að samningurinn verði framlengdur út tímabilið ef vel gengur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×