Sport

Annað lyfjamál í UFC: Eitt af fórnarlömbum Conors í tveggja ára bann

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Conor McGregor vann Chad Mendes sama kvöld og Gunnar Nelson pakkaði Brandon Thatch saman en hér eru þeir allir á blaðamannafundinum eftir bardagakvöldið.
Conor McGregor vann Chad Mendes sama kvöld og Gunnar Nelson pakkaði Brandon Thatch saman en hér eru þeir allir á blaðamannafundinum eftir bardagakvöldið. vísir/getty
Skammt er stórra högga á milli í lyfjamálum UFC í Bandaríkjunum en aðeins degi eftir að þungavigtarkappinn Brock Lesnar fannst sekur um að neyta árangursbætandi efna er komið upp annað stórmál í bardagaheiminum.

Chad Mendes, einn besti fjaðurvigtarkappinn í UFC, hefur verið bannaður í tvö ár frá keppni vegna lyfjamisnotkunar en vaxtarhormón fannst í lyfsýni hans sem var tekið utan keppni 17. maí.

Sjá einnig:Haraldur Nelson segir einni stærstu stjörnu UFC til syndanna fyrir steranotkun

Mendes var í fjórða sæti á fjaðurvigtarlistanum en hann hefur um langa hríð verið ein af stjörnum þess þyngdarflokks.

Hann var búinn að vinna tíu af tólf bardögum sínum áður en Conor McGregor rotaði hann í Vegas í júlí í fyrra en hann tapaði svo aftur í desember á síðasta ári gegn Frankie Edgar.

Mendes var ekki að fara að berjast þegar Bandaríska lyfjaeftirlitið, USADA, kíkti við hjá honum í óvænta heimsókn. Hann fær ekki að keppa aftur í UFC fyrr en 10. júní árið 2018.

Ekki er langt síðan UFC tók þá mjög skynsömu ákvörðun að láta USADA sjá um lyfjaprófin fyrir sig en smám saman virðist lyfjaeftirlitið vera að hreinsa út óþekku bardagakappana.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×