Lífið

Anna Kristjáns tvítug: „Það sem gildir umfram allt er að vera jákvæð“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Anna fyrr og nú.
Anna fyrr og nú.
Tuttugu ár eru síðan Anna Kristjánsdóttir fór í kynleiðréttingaraðgerð í Stokkhólmi. Hún er samkvæmt opinberum tölum annar Íslendingurinn sem hefur farið í slíka aðgerð og var sú fyrsta til þess að tjá sig um málið opinberlega. Anna skrifaði pistil á vef Kvennablaðsins í gær þar sem hún fagnar áfanganum.

„Vissulega lauk erfiðleikunum ekki með aðgerðinni, þvert á móti jukust þeir vegna fordóma einstaklinga sem töldu mig betur dauða en lifandi, þar sem örfáir hafa fundið ástæðu til að lumbra á mér eða að niðurlægja mig á annan hátt, en sem betur fer eru þeir margfalt fleiri sem studdu mig og standa enn með mér og öðrum þeim sem ganga í gegnum aðgerðarferli til leiðréttingar,“ skrifar Anna í pistlinum. Hún segist þó aldrei hafa séð eftir ákvörðun sinni enda sé hún það jákvæðasta sem hafi komið fyrir hana á lífsleiðinni. Allt hafi verið á niðurleið hjá henni árin áður en hún fékk samþykki fyrir því að hefja aðgerðarferlið. „Því hafa seinni tíma erfiðleikar verið léttvægir í samanburði við nánast ókleyfa erfiðleikana sem blöstu við mér áður en Gunnar Hambert prófessor og yfirlæknir við sjúkrahúsið í Uppsölum opnaði dyrnar fyrir mér í Svíþjóð.“

Anna gekkst undir aðgerðina 24. apríl árið 1995 á Karólínska sjúkrahúsinu í Svíþjóð. „Ég lá á spítalanum í ellefu daga eftir aðgerðina en var frá vinnu í tvo mánuði á eftir.“ Anna starfaði lengi á sjó en nú starfar hún hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Hún er vélfræðingur að mennt.

Hún ákvað frá upphafi að hún ætlaði að reyna að beita húmornum og taka létt á hlutunum „og hefur það gengið misjafnlega, oft valdið misskilingi og jafnvel vinslitum á Facebook, en síður í raunheimum, þó einhverjum.“ Anna segist nú orðin nógu gömul til þess að fara í Ríkið. „Það sem gildir umfram allt er að vera jákvæð.“

Pistil Önnu má lesa hér.

Anna hefur barist ötullega fyrir réttindum transfólks á Íslandi.Vísir/Valgarður





Fleiri fréttir

Sjá meira


×