Íslenski boltinn

Anna Björk lánuð til Stjörnunnar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Anna Björk í leik með Stjörnunni í fyrra.
Anna Björk í leik með Stjörnunni í fyrra. vísir/valli
Landsliðsmiðvörðurinn Anna Björk Kristjánsdóttir er gengin í raðir Stjörnunnar á láni frá sænska liðinu Örebro.

Anna Björk gekk til liðs við Örebro í vetur og hefur leikið 11 af 12 deildarleikjum liðsins á tímabilinu.

Anna Björk stoppar stutt hjá Stjörnunni en sænska deildin er í sumarfríi. Næsti leikur Örebro er gegn Piteå á útivelli 27. ágúst.

Anna Björk nær því nokkrum leikjum með Stjörnunni áður en hún heldur aftur til Örebro.

Stjarnan sækir FH heim á mánudaginn í næsta leik sínum í Pepsi-deildinni. Á föstudaginn mætast svo Stjarnan og Breiðablik í stórleik í undanúrslitum Borgunarbikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×