Sport

Aníta áttunda í úrslitahlaupinu

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Aníta var með fjórða besta tímann í undanúrslitunum.
Aníta var með fjórða besta tímann í undanúrslitunum. vísir/epa
Aníta Hinriksdóttir varð áttunda í 800 metra hlaupi á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum í kvöld í Amsterdam á 2:02:55.

Aníta fór mjög geyst af stað í hlaupinu en fyrri hringurinn var mjög hraður. Aníta valdi að hlaupa utarlega og skorti þrek í endasprettinn þar sem hún gaf verulega eftir.

Aníta var rúmum 2 sekúndum frá Íslandsmeti sínu en þetta var í fyrsta sinn sem hún hljóp til úrslita á stórmóti utanhúss. Íslandsmet Anítu hefði dugað í fjórða sæti.

Nataliya Pryshchepa frá Úkraínu vann gullið á 1:59:70. Renelle Lamote frá Frakklandi varð önnur og Lovisa Lindh frá Svíþjóð þriðja.

Bein lýsing:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×