Sport

Aníta á Demantamótaröðinni í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aníta á ÓL í Ríó.
Aníta á ÓL í Ríó. vísir/getty
Hlaupadrottningin Aníta Hinriksdóttir verður í eldlínunni í Brussel í kvöld á móti í Demantamótaröðinni. Mótið er í beinni á Stöð 2 Sport.

Þetta er lokamót Demantamótaraðarinnar og lýkur því viðburðaríku sumri hjá Anítu í kvöld.

Hlaupið í kvöld er fyrir 23 ára og yngri og er Aníta skráð inn með besta tímann.

Hún setti glæsilegt Íslandsmet í Ríó í síðasta mánuði og verður áhugavert að sjá hvort hún geti fylgt því glæsilega hlaupi eftir í kvöld.

Útsending á Stöð 2 Sport frá mótinu hefst klukkan 18.00 en Aníta hleypur áður en útsendingin hefst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×