Erlent

Anis Amri leitaði upplýsinga um sprengjugerð á netinu

Atli Ísleifsson skrifar
Anis Amri er nú leitað um alla Evrópu.
Anis Amri er nú leitað um alla Evrópu. Vísir/AFP
Túnisinn Anis Amri sem eftirlýstur er vegna árásarinnar á jólamarkað í Berlín á mánudag, hafði leitað upplýsinga á netinu um sprengjugerð. Hann á einnig að hafa verið í samskiptum við liðsmenn hryðjuverkasamtakanna ISIS í gegnum dulkóðað smáforrit, Telegram Messenger.

„Við teljum að Amri hafi byrjað að leita samverkamanna til að fremja árás þegar í ársbyrjun 2016,“ hafa þýskir fjölmiðlar eftir heimildarmönnum innan lögreglunnar.

Amri er nú leitað um alla Evrópu en hann hafði verið undir eftirliti yfirvalda fyrr á þessu ári. Fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC greinir frá því að hann hafi verið undir eftirliti vegna gruns um að hafa lagt á ráðin um að fjármagna kaup á sjálfvirkum skotvopnum með ráni.

Yfirvöld hættu hins vegar rannsókn sinni á Amri vegna skorts á sönnunargögnum.

Áður en hann kom til Þýskalands, þar sem hann sótti um hæli, hafði hann afplánað fjögur ár í fangelsi á Ítalíu vegna íkveikju og átti yfir höfði sér fangelsisvist í Túnis. Frá því að hann kom til landsins á hann að hafa dvalið bæði í Berlín og Emmerich í vesturhluta Þýskalands. Í Berlín á hann að hafa stundað fíkniefnaviðskipti.

Tólf létu lífið og 49 særðust í árás mánudagsins þegar maður ók flutningabíl inn á jólamarkaðinn á Breitscheidplatz í Berlín.

New York Times segir að Amri hafi verið á lista yfir þá sem ekki mættu ferðast til Bandaríkjanna.

Í frétt SVT segir að rannsóknarlögregla hafi snemma grunað að Amri hugði á árás í Þýskalandi. Hann á margsinnis að hafa ferðast milli Berlínar og Ruhr í vesturhluta landsins og notaðist við mörg ólík dulnefni.

Öryggislögregla Þýskalands á að hafa varað við að hann skipulagði innbrot til að komast yfir sjálfvirkt skotvopn sem notað yrði í árás. „Sönnunargögnin virðast þó ekki hafa dugað til handtöku,“ segir ónafngreindur lögreglumaður í samtali við Bild.


Tengdar fréttir

Skildi skilríkin eftir í bílnum

Hælisleitandi frá Túnis er grunaður um árásina á jólamarkaðinn í Berlín. Daish-samtökin stæra sig af ódæðinu. Þýsk stjórnvöld hafa ákveðið að fjölga eftirlitsmyndavélum. Vísa átti árásarmanninum úr landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×