Lífið

Angelina Jolie og Brad Pitt giftu sig á laugardaginn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikaraparið Brad Pitt og Angelina Jolie gengu í það heilaga á laugardaginn í Frakklandi.

Parið gifti sig á sveitasetri sínu Chateau Miraval og var athöfnin mjög lítil. Aðeins nánustu vinir og fjölskylda parsins var viðstödd.

Angelina og Brad trúlofuðu sig fyrir tveimur árum og hafa verið saman í alls níu ár. Þau eiga sex börn, Maddox, þrettán ára, Zahara, níu ára, Pax og Shiloh, átta ára og Knox og Vivienne, sex ára. 

Brad bað Angelinu árið 2012 og hannaði trúlofunarhringinn í samstarfi við Robert Procop

Þetta er annað hjónaband Brads sem var kvæntur leikkonunni Jennifer Aniston á árunum 2000 til 2005. Þetta er þriðja hjónaband Angelinu en fyrrverandi eiginmenn hennar eru Johnny Lee Miller og Billy Bob Thornton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×