Glamour

Angelina Jolie er andlit ilmvatnsherferðar Guerlain

Ritstjórn skrifar
Fyrsta myndin sem birtist úr herferðinni.
Fyrsta myndin sem birtist úr herferðinni. Mynd/Guerlain
Snyrtivöruframleiðandinn Guerlain tilkynnti á Instagram síðu sinni í gær að Angelina Jolie væri andlit Mon Guerlain, nýjasta ilmvatns þeirra sem verður gefið út í mars. Aðeins hefur birst ein mynd frá herferðinni en búast má við fleirum þegar nær dregur útgáfu ilmvatnsins. 

Á myndinni má sjá skuggamynd af Jolie og það glittir í tattú á bakinu hennar sem eru líklegast teiknuð á. 

Fram kom í tilkynningu frá Guerlain að Angelina hefði gefið öll laun sín fyrir herferðina til góðgerðarmála.






×