Angela Merkel segir Evrópu verða að berjast fyrir eigin örlögum Kristín Ólafsdóttir skrifar 28. maí 2017 16:58 Angela Merkel fær sér gúlsopa af bjór eftir að hún ávarpaði stuðningsmenn sína á kosningafundi í Munchen í Þýskalandi í dag. Vísir/AFP
Evrópa getur ekki lengur „stólað algjörlega“ á Bandaríkin og Bretland í kjölfar forsetakosninganna í Bandaríkjunum og úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu. Þetta sagði Angela Merkel, kanslari Þýskalands, á kosningafundi í Munchen í Þýskalandi í dag. BBC greinir frá. Merkel sagðist áfram vilja eiga í vinalegu sambandi við bæði löndin, auk Rússlands, en að Evrópa þyrfti að „berjast fyrir eigin örlögum.“ Þessi orð kanslarans vega sérstaklega þungt í kjölfar viðræðna G7-ríkjanna um Parísarsamkomulagið í vikunni. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hyggst tilkynna á næstu dögum um hvort Bandaríkin dragi aðild sína að sáttmálanum, sem tekur til alþjóðlegra viðbragða við gróðurhúsaáhrifum, til baka. Merkel lýsti viðræðunum sem „mjög erfiðum, ef ekki mjög ófullnægjandi.“ „Nú eru þeir tímar liðnir, er við gátum algjörlega stólað á aðra. Ég hef fengið að reyna það á eigin skinni undanfarna daga,“ sagði Merkel er hún ávarpaði samkomu á kosningafundi í Munchen í dag. Merkel vill nú setja samband Þýskalands við Frakkland og hinn nýkjörna forseta, Emmanuel Macron, í forgang. Skoðanakannanir benda til þess að Angela Merkel og flokkur hennar, Kristilegir demókratar (CDU), sigri kosningarnar sem verða haldnar í Þýskalandi í september.
Tengdar fréttir Hyggst taka ákvörðun um stuðning við Parísarsamkomulagið í næstu viku Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mun taka ákvörðun um stuðning Bandaríkjanna við Parísarsamkomulagið í næstu viku. 27. maí 2017 22:00 Mest lesið Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Innlent Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Fleiri löggur á leiðinni Innlent Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Innlent Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Erlent Fleiri fréttir Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Ríki heims verja metupphæðum til hermála Kynferðisafbrotamanni bannað að nota gervigreind Sjá meira
Hyggst taka ákvörðun um stuðning við Parísarsamkomulagið í næstu viku Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mun taka ákvörðun um stuðning Bandaríkjanna við Parísarsamkomulagið í næstu viku. 27. maí 2017 22:00