Gagnrýni

Andvana hnefaleikakeppni

Sigríður Jónsdóttir skrifar
Eysteinn og Valur Freyr í Ati.
Eysteinn og Valur Freyr í Ati.
Leiklist

Borgarleikhúsið, Nýja sviðið

Höfundur: Mike Bartlett

Þýðing: Kristín Eiríksdóttir

Leikarar: Eysteinn Sigurðarson, Vala Kristín Eiríksdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Valur Freyr Einarsson

Leikstjórn: Kristín Eysteinsdóttir

Leikmynd og búningar: Gretar Reynisson

Lýsing: Þórður Orri Pétursson

Tónlist: Hallur Ingólfsson

Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen



Á skrifstofu hjá ónefndu fyrirtæki bíða Thomas, Isobel og Tony eftir að örlagaríkur fundur hefjist en að honum loknum kemur í ljós hvaða tveir starfskraftar halda sínu starfi og hver verður rekinn. At eftir Mike Bartlett er fyrsta frumsýning Borgarleikhússins á þessu leikári en Kristín Eysteinsdóttir leikstýrir.

Mike Bartlett er rísandi stjarna í bresku leikhúsi sem tekur oftar en ekki pólitísk málefni líðandi stundar fyrir í sínum verkum. At á að vera rannsókn á grjóthörðum kapítalisma, gífurlegum metnaði og grunneðlishvöt mannskepnunnar til að lifa af. En ýmsir gallar, þó ekki síst á verkinu sjálfu, koma í veg fyrir að sýningin komist nokkurn tímann á fulla ferð.

Kristín teflir fram tveimur nýútskrifuðum leikurum í sýningunni en Eysteinn Sigurðarson og Vala Kristín Eiríksdóttir stíga hér sín fyrstu skref í Borgarleikhúsinu. Bæði eru þau hæfileikarík, á því er lítill vafi, en þau skortir bæði litbrigði í leik sínum. Eysteinn er góður þegar hann finnur kómíkina en örvænting hans er einsleit. Vala Kristín verður betri eftir því sem á líður og loka­ræðan hennar er fín, þegar tilfinningakuldi Isobel verður nístandi.

Þorvaldur Davíð snýr aftur á fjalirnar í hlutverki hins óforbetranlega og hrokafulla Tonys, sem hikar ekki við beita öllum brögðum til að ná sínu fram. Þorvaldur Davíð nýtur sín þokkalega í hlutverki Tonys en því miður er karakterinn hreinlega ekki nægilega vel skrifaður. Hið sama má segja um allar persónur verksins en þær eru að auki alveg einstaklega óáhugaverðar.

Verk eins og At er krefjandi fyrir leikara sem hafa nánast ekkert til að styðjast við nema leiktextann; fáa leikmuni, engin senuskipti og lágstemmdar ljósabreytingar. Valur Freyr kemur líkt og stormsveipur inn í verkið og nær ágætis tökum á hlutverki Carters. Hann hefur bara eitt markmið og enga misk­unn, hann hefur ekki tíma fyrir slíkt. Líkamsbeiting hans er ógnandi, röddin lág og valdið skín af honum. En líkt og allar hinar persónur verksins er hann tvívíður og þreytandi.

Í staðinn fyrir sandpytt nautaatsins standa persónurnar í hnefaleikahring, dansandi á tánum, tilbúnar að hörfa eða slá frá sér. Gretar Reynisson hefur búið til stílhreina leikmynd en vandamálið liggur í blönduðum myndlíkingum þar sem nautaat mætir hnefaleikum. Hugmyndirnar skolast fram og til baka en Kristín sem leikstjóri verksins hefði átt að taka miklu skýrari afstöðu til grunnhugmyndanna. Gretar sér einnig um búningana sem eru þokkalegir þó að fatnaður Carters sé sérkennilega gamaldags.

At minnir stundum á Glengarry Glen Ross eftir David Mamet, en í stað þess að burðast með fortíðina á bakinu eru persónur Bartletts frekar eins og flatar táknmyndir, stundum virkar verkið eins og stílæfing. Ein persóna segir eitthvað og hin finnur leið til að snúa út úr, síðan er sami leikurinn endurtekinn í hið óendanlega, algjörlega gerilsneydd atburðarás. Fátt er um hvörf í verkinu og þannig gríðarlega erfitt að skrúfa upp spennu í framvindunni en lokaniðurstaðan er óhjákvæmileg og óspennandi.

Þýðing Kristínar Eiríksdóttur er samt tær og skýr, laus við prjál en hnyttin.

Gallinn liggur í orku sýningarinnar og verkinu sjálfu. Til að At gangi upp verður framsetningin að vera keyrð áfram af heiftarlegum krafti, grimmd og gáskafullum leik en allt kemur fyrir ekki. Nákvæm en aftengd leikstjórn Kristínar nær alls ekki að virkja kjarna verksins og þrátt fyrir ágæta frammistöðu leikaranna myndast alltof oft tómarúm í sýningunni sem má ekki gerast í leikriti sem er jafn stutt og At.

Niðurstaða: Óspennandi leikrit um óáhugavert fólk, en Valur Freyr ­stendur þó upp úr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×