Handbolti

Andri Hrafn til FH

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Andri Hrafn er genginn í raðir FH.
Andri Hrafn er genginn í raðir FH. Mynd/FH
Andri Hrafn Hallsson skrifaði undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild FH um helgina.

Andri Hrafn er 23 ára örvhentur hornamaður. Hann er uppalinn á Selfossi og hefur spilað stórt hlutverk í liði Selfyssinga síðustu ár. Hann spilaði þó fyrri hluta tímabilsins 2012/2013 með liði Aftureldingar.

Á nýliðnu tímabili var hann fyrirliði Selfyssinga og næstmarkahæsti leikmaður liðsins í deildinni, en hann skoraði 53 mörk í 15 leikjum. Andri spilaði sem skytta upp alla yngri flokka og getur leikið bæði fyrir utan og í horninu.

„Ég var búinn að hugsa mér til hreyfings í sumar, enda búsettur í Reykjavík og í námi,“ sagði Andri Hrafn við undirritunina.

„Þegar FH hafði samband var ég strax áhugasamur enda eitt stærsta lið landsins. Í lokin var þetta ekki spurning og ég er bæði stoltur og gríðarlega spenntur fyrir því að vera hluti af liði sem kemur til með að berjast um alla titla á komandi tímabili. Það er þó ekki auðveld ákvörðun að yfirgefa Selfoss, og þakka ég öllum Selfyssingum fyrir samstarfið og óska þeim góðs gengis í vetur.“


Tengdar fréttir

Andri Berg verður áfram hjá FH

Varnarmaðurinn sterki úr FH skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við félagið en hann hefur verið á mála hjá félaginu undanfarin þrjú tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×