Lífið

Andrés Þór bæjarlistamaður ársins í Hafnafirði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Andrés Þór Gunnlaugsson
Andrés Þór Gunnlaugsson mynd/aðsend
Hafnarfjarðarbær hefur útnefnt Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikara sem bæjarlistamann ársins 2014 og var það gert við hátíðlega athöfn sem var að ljúka í Hafnarborg.

Jafnframt voru veittir tveir hvatningarstyrkir til listamanna sem hafa lengi unnið ötullega að listsköpun sinni og þá hlutu myndlistarmennirnir Kristbergur Pétursson og Ólöf Björg Björnsdóttir.

Bæjarlistamaður hlýtur 1 milljón króna styrk og hvatningarstyrkir eru 250.000 kr. hvor.

Við sama tækifæri veitti menningar- og ferðamálanefnd 24 styrki til menningarstarfsemi og viðburða, samtals 5 milljónir króna.

Styrki hlutu:

Rúnar Óskarsson vegna kammertónleika í Hafnarborg kr. 100.000

Birna Bjarnadóttir vegna sýningarinnar Könnunarleiðangur á Töfrafjallið í St. Jósepsspítala, kr. 150.000

Brynja Árnadóttir vegna listsýningar í Samfylkingarhúsinu, kr. 100.000

Eyrún Ósk Jónsdóttir og Helgi Sverrisson vegna leikritasafns í skrappbókarformi kr. 150.000.

Álfagarðurinn í Hellisgerði vegna álfahátíðar á sumarsólstöðum kr.,150.000.

Björgvin Valdimarsson vegna snjóbrettamóts í miðbæ Hafnarfjarðar, kr. 50.000.

Annríki, þjóðbúningar og skart vegna hönnunar og vinnslu á faldbúningi Rannveigar Filippusdóttur sem er gjöf til Byggðasafns Hafnarfjarðar kr. 200.000.

Jórunn Jörundsdóttir f. h. hóps listamanna vegna opinna vinnustofa og sýninga í Dvergshúsinu á Björtum dögum og á aðventu kr. 30.000.

Margrét Sesselja Magnúsdóttir vegna verkefnisins Elligleði sem ætlað er fyrir minnissjúka kr., 200.000.

Magnús Leifur Sveinsson vegna tónlistarviðburðarins Pottapopp í Sundhöll Hafnarfjarðar kr. 150.000

Kvennakór Hafnarfjarðar vegna vortónleika kr. 100.000.

Vigdís Klara Aradóttir vegna tónleika í Víðistaðakirkju þar sem fram koma Guido Bäumer og Aladár Rácz kr. 120.000.

Birgir Sigurðsson vegna myndlistarhátíðar Gallerís 002 kr. 150.000

Þórarinn Jón Magnússon vegna rafbókar um sögu Hafnarfjarðar, kr. 250.000.

Leikfélag Hafnarfjarðar vegna 5 verkefna á árinu og öflugrar leiklistarstarfsemi fyrir börn og áhugafólk um leikritun og leiklist kr. 500.000.

Gaflarakórinn vegna kóramóts sem kórinn stendur fyrir, kr. 150.000.

Lúðrasveit Hafnarfjarðar vegna tónleikahalds og fleira kr. 500.000.

Sveinssafn vegna verkefna ársins, kr. 500.000.

Gunnar Gunnarsson f.h. kennara við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar vegna raðtónleika víða um bæinn kr. 200.000

Stefán Ómar Jakobsson vegna Eftirstríðsára dansleiks í Gúttó kr. 150.000

Hekla Dögg Jónsdóttir vegna einkasýningar í Hafnarborg kr. 150.000

Kristinn Skagfjörð Sæmundsson f.h. Menningar- og listafélags Hafnarfjarðar vegna hátíðarinnar Heima í Hafnarfirði kr. 450.000.

Steinunn Guðnadóttir vegna ritunar bókar um Jóhannes Reykdal kr. 250.000

Ragnheiður Gestsdóttir vegna kynningar á ljóðum og textum hafnfirskra höfunda í Gúttó kr. 100.000






Fleiri fréttir

Sjá meira


×