Sport

Andre Berto næsti mótherji Mayweather

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bardaginn gegn Andre Berto gæti orðið sá síðasti á ferli Mayweathers.
Bardaginn gegn Andre Berto gæti orðið sá síðasti á ferli Mayweathers. vísir/getty
Hnefaleikamaðurinn umdeildi Floyd Mayweather mætir Andre Berto í næsta bardaga sínum.

Berto þessi er 31 árs fyrrverandi heimsmeistari en hann hefur unnið 31 af 34 bardögum sínum á ferlinum og tapað þremur. Þessi þrjú töp Bertos hafa komið í síðustu sex bardögum hans.

Hans bíður erfitt verkefni gegn Mayweather í Las Vegas 12. september næstkomandi en sá síðarnefndi er ósigraður í 48 bardögum á ferlinum.

Vinni Mayweather Berto jafnar hann met Rocky Marciano sem vann alla 49 bardaga sína á ferlinum sem stóð frá 1947 til 1955.

Svo gæti farið að þetta yrði síðasti bardagi Mayweather á ferlinum en hann hefur áður lýst því yfir að hann ætli að leggja hanskana á hilluna eftir bardaga númer 49.

Mayweather bar sigurorð af Manny Pacquiao í síðasta bardaga sínum eins og frægt er orðið.

Andre Berto vann Josesito Lopez í síðasta bardaga sínum.vísir/getty
Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×