Innlent

Andlát: Ragnar Örn Pétursson

Samúel Karl Ólason skrifar
Ragnar Örn Pétursson.
Ragnar Örn Pétursson.
Ragnar Örn Pétursson fyrrv. íþróttafulltrúi Reykjanesbæjar lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 29. apríl eftir skammvinna baráttu við krabbamein.

Ragnar Örn starfaði sem íþróttafulltrúi Reykjanesbæjar í nær 20 ár. Hann var ötull þátttakandi í íþróttastarfi Reykjanesbæjar og var m.a. í íþróttaráði Keflavíkur frá 1986-1998. Var formaður Íþróttabandalags Keflavíkur 1994-1998. Ragnar Örn var varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Keflavík frá 1990-1994 og starfaði fram til dánardags fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Keflavík og var formaður Fulltrúaráðs flokksins.

Ragnar Örn var formaður Starfsmannafélags Suðurnesja í 14 ár frá 1999-2013 og sat þau ár einnig í stjórn BSRB. Ragnar Örn var virkur meðlimur Kiwanis-hreyfingarinnar og gegndi þar fjölmörgum trúnaðarstörfum, þar á meðal var hann umdæmisstjóri hreyfingarinnar á Íslandi og  í Færeyjum 2011-12 og sat í Evrópustjórn þann tíma.

Ragnar Örn lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn og 10 barnabörn

Útför verður frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 04. maí kl. 13.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×