Handbolti

Andersson samdi við Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lasse í landsleik.
Lasse í landsleik. vísir/getty
Spænska stórliðið Barcelona er búið að semja við Danann öfluga, Lasse Andersson, sem kemur til liðsins frá Kolding.

Andersson er 22 ára öflug skytta. Andersson gerði Barcelona meðal annars lífið mjög leitt í Barcelona í Meistadeildinni síðasta vetur.

Andersson samdi til fjögurra ára við Börsunga en þessi strákur á bjarta framtíð fyrir höndum. Hann hefur aftur á móti verið óheppinn með meiðsli.

Það verður því áfram Dani í herbúðum Barcelona en Jesper Nöddesbo yfirgefur herbúðir Barcelona í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×