Fótbolti

Andersen ekkert fúll út í Óskar: Mig langaði samt rosalega að taka vítið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Morten Beck Andersen, framherji KR, kom inn á í seinni hálfleik í leiknum gegn Grasshopper í Evrópudeildinni í kvöld og spilaði hreint stórkostlega. Leikurinn endaði með 3-3 jafntefli en allt um gang mála má lesa hér.

Daninn skoraði eftir 16 sekúndur í seinni hálfleik og aftur fjórum mínútum síðar og jafnaði metin í 2-2. Andersen hefur ekki enn skorað í deild né bikar, en hvað gerðist í kvöld?

„Það gerðist ekki neitt. Ég bara skoraði. Ég hef vissulega ekki náð að skora mikið hingað til þannig þetta var virkilega gaman,“ sagði skælbrosandi Morten Beck Andersen í viðtali við Vísi eftir leikinn í kvöld. Honum var greinilega létt.

Fyrir utan að skora spilaði Daninn mjög vel. Hann var virkilega sterkur á boltanum og lífgaði svakalega upp á sóknarleik KR. Hann steig vart feilspor.

„Það voru ekki bara mörkin í kvöld. Mér fannst ég vera að spila mjög vel. Það var samt gott að skora því þau hafa ekki verið að detta. Mér leið alveg rosalega vel inn á vellinum,“ sagði Andersen, en er þetta sá leikmaður sem KR og stuðningsmenn liðsins eiga að vera að sjá?

„Já, klárlega. Ég sýndi alveg hvað í mér býr í kvöld og ég hef svo sem gert það áður en eins og ég segi hef ég bara ekkert verið að skora. Nú held ég bara vonandi áfram að setja mörk til að getað hjálpað KR-liðinu.“

Andersen hefði getað skorað þrennu í leiknum í kvöld en hann hljóp að boltanum tilbúinn að taka vítaspyrnuna þegar nafni hans Morten Beck féll í teignum. Óskar Örn Hauksson, vítaskytta KR, tók það ekki í mál og skoraði sjálfur af punktinum.

„Það er allt í góðu á milli okkar. Ég var bara að láta hann vita að ég var tilbúinn að taka spyrnuna ef hann væri ekki klár. En ef það er einhver sem ég treysti fyrir því að taka víti þá er það Óskar,“ sagði Andersen.

Aðspurður á léttu nótunum hvort hann hefði inn í sér verið að vona að Óskar myndi klikka á vítinu fyrst hann leyfði honum ekki að taka spyrnuna hló Andersen upphátt.

„Nei, alls ekki. Þessi var góður!“ sagði Morten Beck Andersen.

Öll mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×