Matur

Andasalat með perum og geitaosti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Æðislegt andasalatAndasalat með stökkum valhnetum og geitaosti

2 andabringur

1 poki klettasalat

1 granatepli

2 perur

1 tsk ólífuolía

1 tsk smjör

Handfylli ristaðar valhnetur

Geitaostur, magn eftir smekk

Salatdressing

1 tsk rauðvínsedik

1 dl jómfrúarolía

2 skallottulaukar

1 tsk dijon sinnep

Salt og pipar



Aðferð:

Skerið aðeins í andabringurnar og steikið á pönnu. Kryddið bringuna til með salti og pipar og steikið bringurnar í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Setjið andabringurnar í eldfast mót og inn í ofn við 180°C í 8 - 10 mínútur. Eins og með allt kjöt er mikilvægt að leyfa því að hvíla í fáeinar mínútur áður en það er skorið, en það kemur í veg fyrir að safinn leki út og kjötið verði þurrt.

Skerið perur í sneiðar og steikið upp úr olíu og smjöri í 1-2 mínútur á hvorri hlið.

Þurristið valhnetur á pönnu.

Útbúið franska salatdressingu, saxið niður skallottulauk mjög smátt og setjið í skál. Blandið jómfrúarolíu, sinnepi og rauðvínsediki saman við og hrærið vel í dressingunni.

Veltið kálinu upp úr dressingunni og leggið salatið á fat, raðið perum yfir, skerið andabringuna í sneiðar og leggið yfir, myljið geitaosti, sáldrið valhnetum og dreifið granateplum yfir salat í lokin.

Berið strax fram og njótið vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×