Matur

Andabringur með pistasíum og trönuberjum

Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson gefur gómsætar uppskriftir á Stöð 2 fram að jólum.

Andabringur með pistasíum og trönuberjum

fyrir 4

800 g andabringur

1 msk. af fínt rifnum lime berki

Olía til steikingar

Sjávarsalt

Hvítur pipar úr kvörn

3 msk. pistasíur

3 msk. trönuber

1 lime

2 msk. graslaukur fínt skorinn

Setjið andabringurna á miðlungsheita pönnu með fituhliðina fyrst niður og steikið í ca 4 mín á fituhliðinni. Snúið bringunum við og steikið í ca 2 mín á hinni hliðinni. Kryddið með salti og pipar. Setjið bringurnar inn í 80 gráðu heitan ofninn í 40 mínútur. Setjið pistasíurnar á pönnuna sem að andabringurnar voru steiktar á og eldið þær upp úr andafitunni í ca 3 mín eða þar til þær verða stökkar. Bætið trönuberjunum út á pönnuna og eldið með pistasíunum í 1 mín. Kryddið með salti og pipar eftir smekk. Gott er að setja smá fínt skorinn graslauk líka með.

Steiktir shitakesveppir, spínat og perur

2 box shitakesveppir

2 stk. pera

2 msk. fínt skorin skallotlaukur

2 msk. sojasósa

1 msk. smjör

ólífuolía til steikingar

Sjávarsalt

Svartur pipar úr kvörn

Skerið sveppina í fernt og setjið á heita pönnu með ólífuolíu og smá smjöri. Steikið sveppina þar til þeir eru oðnir mjúkir. Skrælið og skerið peruna í stóra bita og bætið út á pönnuna ásamt skallotlauknum og sojasósunni. Kryddið með salti og pipar ef þurfa þykir.



Sætkartöflumús með hvítlauk og engifer

2 stk. bakaðar sætar kartöflur (bakaðar í 90 mín við 200 gráður)

2 msk. fínt rifinn ferskur engifer

1 hvítlauksgeiri (fínt rifinn)

200 ml líter rjómi

½ poki spínat

Sjóðið upp á rjómanum og bætið sætu kartöflunum svo út í. Bætið svo hvítlauknum og engifernum út í og smakkið svo músina til með salti. Rétt áður en músin er borin fram er spínatinu bætt út í pottinn og blandað saman við músina.

Lime hunangssósa

3 stk. laukar (skrældur og gróft skorinn)

6 stk. hvítlauksgeirar

1 stk. lárviðarlauf

2 stk. stjörnuanis

4 sellerístilkar (gróft skornir)

½ flaska hvítvín

50 ml sojasósa

50 ml hunang

1 líter kjúklingasoð

100 g smjör skorið í teninga

safi úr 2 lime

ólífuolía til steikingar

sjávarsalt

svartur pipar úr kvörn

Hitið stóran pott með olíu og steikið laukinn, hvítlaukinn, og selleríið þar til allt er orðið gullin brúnt. Bætið lárviðarlaufinu og stjörnuanisnum út í og hellið því næst sojasósunni út í og látið hana sjóða niður um helming. Bætið svo hvítvíninu út í og látið það sjóða niður um helming líka. Setjið svo hunangið, kjúklingasoðið og látið sjóða við vægan hita í 1 klst. Sigtið soðið yfir í annan pott og látið það sjóða þar til það fer að þykkna. Bætið smjörinu smám saman út í og smakkið til með saltiinu og limesafanum og meira hunangi ef þurfa þykir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×