Fótbolti

Ancelotti ósáttur og ætlar að breyta til

Smári Jökull Jónsson skrifar
Carlo Ancelotti var ósáttur með sína menn eftir leikinn gegn Frankfurt.
Carlo Ancelotti var ósáttur með sína menn eftir leikinn gegn Frankfurt. Vísir/Getty
Carlo Ancelotti þjálfari Bayern var ósáttur með hugarfar sinna manna eftir jafnteflið gegn Frankfurt í þýsku deildinni í gær.

Bayern er á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar en missti niður 2-1 forystu gegn Frankfurt og það þrátt fyrir að liðið væri einum leikmanni fleiri inni á vellinum.

„Við spiluðum ekki vel, við sýndum ekki gott hugarfar og lékum einfaldlega gegn liði sem var grimmara en við og nálgaðist leikinn á betri hátt," sagði Ancelotti við fjölmiðla eftir leik.

„Við vorum sofandi í næstum því 45 mínútur. Seinni hálfleikurinn var örlítið betri en úrslitin voru sanngjörn fyrir bæði lið,“ bætti ítalinn snjalli við en hann þurfti að grípa í taumana og fara inn á völlinn þegar leikmönnum liðanna lenti saman eftir að leikmaður Frankfurt fékk að líta rauða spjaldið í síðari hálfleik.

„Ég vildi róa mína leikmenn niður. Ég vil auðvitað að þeir haldi sér frá svona atvikum. En atvikið sýndi að mínir leikmenn voru ekki með einbeitinguna í lagi í dag.“

Ancelotti er ósáttur með að Bayern hefur átt langa kafla í leikjum tímabilsins þar sem liðið spilar ekki vel. Hann segist þurfa að gera breytingar til að laga það sem ekki er í lagi.

„Við höfum verið sofandi í 45 mínútur í hverjum einasta leik á tímabilinu og það er of mikið. Það er kannski hægt að sleppa með að missa einbeitingu í 10 mínútur - en 45 mínútur er of mikið.“

„Ég verð ekki reiður þegar liðið mitt spilar illa. Það eina sem gerir mig reiðan er ef hugarfar leikmanna minna er rangt. Ég þarf að gera breytingar því ég vil ekki að liðið mitt sýni svona hugarfar,“ sagði Ancelotti að lokum, hundfúll með leikmenn sína. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×