Fótbolti

Ancelotti: Ef ég verð rekinn mun ég taka mér ár í pásu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ancelotti á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Getafe.
Ancelotti á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Getafe. vísir/getty
Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, segir að hann muni taka sér ársleyfi verði hann rekinn frá Madrídarliðinu í sumar. Real vann engan titil á tímabilinu og það er ekki ásættanlegur árangur þar á bæ.

„Framtíðin er klár í höfðinu á mér. Ég mun vera áfram hér hjá Real Madrid eða ég mun taka mér eitt ár í pásu,” sagði Ancelotti eftir 7-3 sigur Real á Getafe í lokaumerð spænsku úrvalsdeildarinnar.

„Ég held að við munum hittast í næstu viku til þess að klára þessi mál. Þetta er fótbolti, sérstaklega hjá liði eins og Real Madrid þar sem það er eðlilegt að menn spyrji sig spurninga eftir að tímabilið fór ekki vel.”

Real lenti í öðru sæti í deildinni tveimur stigum á eftir Barcelona, féll út úr undanúrslitum Meistaradeildarinnar á móti Juventus og datt út fyrir grönnum sínum í Atletico Madrid í 16-liða úrslitum spænska bikarsins.

„Þetta er partur af mínu starfi. Á síðasta ári unnum við tíunda Evróputitilinn og á þessu ári hefur þetta verið erfitt. Ég mun ekki gleyma hvað við gerðum í fyrra og ég mun ekki gleyma því hvað við gerðum í ár. Þú verður að taka allt með í reikninginn.”

„Mig langar til að vera áfram. Ef félagið segir að ég muni ekki vera áfram mun ég ekki vera ánægður, en þetta er þá ekki í fyrsta skipti sem það gerist í fótboltanum. Þetta gerðist við mig hjá Juventus og Chelsea, en hjá PSG bað ég um að hætta,” sagði Ancelotti að lokum.

Rafael Benitez, núverandi stjóri Napoli og fyrrverandi stjóri Liverpool, hefur verið orðaður við starfið og heimildir Guillem Balague, sparkspekings Sky Sports á Spáni, telja að Benitez hefur nú þegar rætt við Real.


Tengdar fréttir

Ronaldo skoraði þrennu í fyrsta leik Ødegaard

Cristiano Ronaldo skoraði þrennu í stórsigri Real Madrid á Getafe í síðustu umferð spænsku úrvalsdeildinnar í dag. Lokatölur urðu 7-3, en staðan í hálfleik var 3-3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×