Menning

Ánægja með Arnald í The New York Times

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Bókin Reykjarvíkurnætur fékk góða dóma vestanhafs í síðustu viku.
Bókin Reykjarvíkurnætur fékk góða dóma vestanhafs í síðustu viku.
Bókin Reykjavíkurnætur eftir rithöfundinn Arnald Indriðason fékk prýðisgóða dóma í The New York Times og Chicago Tribune í síðustu viku.

Í dómnum sem birtist í The New York Times er bókin sögð undirstrika á góðan hátt þá eiginleika sem gera bækur Arnaldar ánægjulegar og einnig er farið fögrum orðum um Reykjavíkurnætur í Chicago Tribune.

Reykjavíkurnætur kom út hjá Forlaginu árið 2012 og fjallar um fyrsta mál lögreglumannsins Erlendar sem er löngu orðinn lesendum Arnaldar góðkunnur.


Tengdar fréttir

Svolítið skotinn í Sonum duftsins

Ný bók Arnaldar Indriðasonar, Reykjavíkurnætur, kemur út í dag. Arnarldur segir í samtali við Vísi að bókin gerist árið 1974, tveimur árum eftir Einvígið sem kom út í fyrra. Hún segir frá fyrsta málinu sem Erlendur Sveinsson vinnur að í lögreglunni. "Þá er hann bara í umferðarlöggunni og vinnur mikið á næturvöktum. Þaðan er nafnið komið,“ segir hann. Marion Briem kom mikið við sögu í bókinni í fyrra, en Erlendur vill ekkert segja til um hvort Marion komið mikið við sögu í nýju bókinni. "Ég vildi nú helst ekki segja mikið meira um efnið, betra að fólk upplifi það þá frekar sjálft,“ segir Arnaldur í samtali við Vísi.

Undir blikkinu á Arnarhóli

Sagan hverfist um tvö mál sem verða á vegi Erlendar á næturvöktum í götulögreglunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×