Innlent

Ánægð með nýja fjölskyldumeðlimi

Samúel Karl Ólason skrifar
Starfsmenn Icelandair með nýju fjölskyldumeðlimunum.
Starfsmenn Icelandair með nýju fjölskyldumeðlimunum. Mynd/Icelandair
Starfsmenn Icelandair í Seattle ættleiddu fjóra hvolpa sem fæddust skömmu áður en móðir þeirra átti að fljúga til Stokkhólms. Þar sem hvolparnir fæddust í Bandaríkjunum mátti ekki flytja þá til Stokkhólms, vegna sóttkvíarlaga.

Á Facebook síðu Icelandair segir að farþegi sem þekktur er sem „afi“ Torsten hafi verið á ferðalagi með sleðahundi sínum Pepper. Starfsmenn flugfélagsins tóku þó eftir því að það voru fleiri en einn hundur í búri Pepper.

Þá hafðu tíkin fætt fjóra hvolpa.

Starfsmenn Icelandair ættleiddu hvolpana og skýrðu þá eftir eldfjöllum Íslands. Hvolparnir heita Hekla, Askja, Keilir og Katla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×