Lífið

Amy Schumer mun leika Barbie

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Amy Schumer skaust upp á stjörnuhiminninn í kvikmyndinni Trainwreck.
Amy Schumer skaust upp á stjörnuhiminninn í kvikmyndinni Trainwreck. Glamour/Getty
Amy Schumer mun koma til með að leika aðalhlutverkið í kvikmynd um Barbie dúkkur sem kvikmyndaverið Sony Pictures hyggst framleiða. Guardian greinir frá þessu.

Amy, sem öðlaðist heimsfrægð eftir leik sinn í kvikmyndinni Trainwreck frá árinu 2015 mun þar leika persónu sem er Barbie dúkka í Barbie landi.

Á einhvern undraverðan hátt kemst hún yfir í hinn raunverulega heim þar sem hún áttar sig smátt og smátt á því að fegurðin snýst ekki bara um útlitið heldur um það sem er innra með mannfólkinu.

Kvikmyndin verður í samskonar stíl og Disney myndin Enchanted þar sem teiknuð veröld var notuð í bland við raunverulega. Framleiðsla myndarinnar hófst fyrir tveimur árum en hefur mætt ýmsum erfiðleikum en meðal annars hefur handritshöfundum ítrekað verið skipt út.

Enn á eftir að finna leikstjóra fyrir myndina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×