Amsterdam sekkur hægt og bítandi ofan í misráðin göng Atli Steinn Guðmundsson skrifar 26. október 2009 08:39 Göngin, eins og staðan er í dag.
Göng undir Amsterdam, sem ætlað var að hýsa neðanjarðarlest og stórbæta samgöngur í borginni, eru að verða einn mesti höfuðverkur skipulagsyfirvalda þar. Helenu van Gelder og þremur sonum hennar varð ekki um sel þegar heimili þeirra, fallegt 17. aldar hús í Vijzelgracht í Amsterdam, sökk um rúma 20 sentimetra í einu vetfangi. Fjölskyldan bættist þar með í hóp fórnarlamba einnar vafasömustu og dýrustu framkvæmdar sem íbúar Amsterdam hafa horft upp á. Þar er um að ræða heljarmikil göng undir borgina þvera og endilanga sem menn hafa hamast við í sjö ár og kosta nú þegar þrjá milljarða evra án þess að nálgast að vera nothæf. Hugmyndin var að neðanjarðarlest þyti eftir göngunum borgarenda á milli og drægi örlítið úr mannmergðinni á götunum en hjólreiðafólk, gangandi vegfarendur, bílar og sporvagnar mynda þar eina óreiðukennda kös, einkum að sumarlagi þegar ferðamenn bætast við þá íbúaflóru sem fyrir er í borginni. Skipulagsyfirvöld eru hins vegar núna að átta sig á því að undirstöður Amsterdam eru úr litlu öðru en drullu, leir og vatni og þegar göng eru grafin 30 metra undir sjávarmáli í slíku umhverfi má litlu muna að stórslys verði. Enginn hefur þó látið lífið enn sem komið er en mörg sögufræg hús eru talin í stórhættu og hafa sum þeirra sigið niður í jörðina vegna framkvæmdanna og gætu hæglega pompað alla leið niður í göngin með tilheyrandi skelfingu. Tjeerd Herrema sagði sig úr skipulagsráði borgarinnar fyrr á þessu ári í bræði sinni yfir þessari firru sem hollenska þingið samþykkti að ráðast í árið 2002, augljóslega án þess að kynna sér málið til hlítar.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Fleiri fréttir Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Sjá meira