Bíó og sjónvarp

American Idol kvaddi með stæl - Myndbönd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnaður lokaþáttur í American Idol
Magnaður lokaþáttur í American Idol vísir
Fimmtándu og síðustu þáttaröð American Idol lauk fimmtudaginn 7. apríl eða aðfaranótt föstudags og komu þá allar helstu stórstjörnur fram í lokaþættinum.

Framleiðendur lofuðu einni stórkostlegu söngveislu frá byrjun og er óhætt að fullyrða að það hafi tekist. Fram komu helstu stjörnur síðustu þáttaraða eins og Kelly Clarkson og Carrie Underwood ásamt fjölda annarra stórsöngvara ásamt annarra þekkra einstaklina á borð við Ellen Degeneres og fl. 

Obama hóf þáttinn með skilaboðum þar sem hann ávarpaði sjónvarpsáhorfendur og ítrekaði mikilvægi þess að nýta atkvæðarétt sinn í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum. 



Stöð 2 sýndi úrslitaþáttinn í beinni útsendingu eins og glöggir áhorfendur tóku eftir en fyrir þá sem vöktu ekki frameftir miðnætti þann daginn þá var hægt að horfa á þrefaldan lokaþátt í föstudagskvöldið á Stöð 2.

Þá voru ekki bara keppendur sem stálu senunni heldur einnig dómarar, hér fer Jennifer Lopes á kostum.



Allar helstu stjörnur síðustu þáttaraða komu einnig fram í sérstökum hátíðarþætti sem sýndur var á undan þar ótrúleg augnablik rifjuð upp ásamt nýjum og sjóðheitum atriðum.



Trent Harmon sigraði American Idol með sóma lokaþátturinn fór fram í Dolby leikhúsinu í Los Angeles.



Hann barðist um titilinn við hina hæfileikaríku La'Porsha Renae.



Fyrir áhugasama þá er hægt að sjá lokaþættina inná Frelsi Stöðvar 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×