Viðskipti erlent

Amazon opnar verslun þar sem ekki þarf að borga

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Netverslunarrisinn Amazon hefur opnað matvöruverslun sem algjörlega laus við allar raðir eða greiðslukassa.
Netverslunarrisinn Amazon hefur opnað matvöruverslun sem algjörlega laus við allar raðir eða greiðslukassa. Vísir/Skjáskot
Netverslunarrisinn Amazon hefur opnað matvöruverslun sem algjörlega laus við allar raðir eða greiðslukassa. Fyrsta búð Amazon Go hefur verið opnuð í Seattle borg og þar geta viðskiptavinir gripið það sem þeir hyggjast kaupa og farið. 

Í versluninni eru skannar sem skynja hvaða vörur viðskiptavinir taka með sér heim. Við komu í búðina skanna viðskiptavinir smáforrit í farsíma sínum. Því næst er hægt að ganga um búðina og velja vörur á hefðbundinn hátt. Þegar búðin er yfirgefin er viðkomandi svo rukkaður fyrir vörurnar sem hafðar eru meðferðis í gegnum Amazon reikning.

Eins og stendur er búðin á prufustigi og eingöngu aðgengileg fyrir starfsmenn Amazon. Búist er við að hún verði opin almenningi snemma árs 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×