Viðskipti erlent

Amazon ætlar í slag við efnisveitur

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/EPA
Tæknifyrirtækið Amazon ætlar í slag við Youtube og aðrar efnisveitur. Amazon Video Direct verður hannað fyrir „atvinnumenn“ en einu skilyrðin eru í raun að myndbönd séu á háupplausn og þeim fylgi texti. Eigendur myndbanda munu geta valið hvernig mögulegt sé að horfa á efni þeirra. Hvort sem það sé ókeypis með auglýsingum, gegn kaupum eða áskrift.

Ekki eru allir sammála um að AVD verði í samkeppni við Youtube. Veitan verði frekar á móti HBO, Netflix og öðrum slíkum efnisveitum.

Þjónustan opnar nú í kvöld.

Samkvæmt tilkynningu frá Amazon hefur fyrirtækið gert samninga um að dreifa efni frá Conde Nast Entertainment, HowStuffWorks, Samuel Goldwyn Films, The Guardian, Mashable, Mattel, StyleHaul, Kin Community, Jash, Business Insider, Machinima, TYT Network, Baby Einstein, CJ Entertainment America, Xive TV, Synergetic Distribution, Kino Nation, Journeyman Pictures, and Pro Guitar Lessons.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×