Þetta var erfitt tímabil fyrir Amare Stoudemire í NBA-deildinni í körfubolta og hann kórónaði það með því að missa af leik með New York Knicks í úrslitakeppninni eftir að hafa barið hendinni í slökkvitæki í svekkelski eftir einn tapleikinn á móti Miami Heat.
Amare Stoudemire sló í gegn á fyrsta tímabil sínu með New York Knicks (25,3 stig í leik) en það hefur lítið gengið síðan að Carmelo Anthony fór að heimta boltann í hverri sókn (17,5 stig í leik).
Það eru þó loksins einhverjar jákvæðar fréttir af Stoudemire því kappinn ætlar að nýta sumarið vel, ekki bara til æfinga heldur einnig í náminu. Hann fór aldrei í háskóla því hann gerðist atvinnumaður í NBA-deildinni strax eftir menntaskólann.
Stoudemire ákvað því á dögunum að skrá sig í sumarskóla í University of Miami. Stoudemire segist ætla að halda áfram að mennta sig en hann stefnir á svokallað Bachelor of General Studies próf.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Lið ársins í NBA-deildinni var tilkynnt í dag og ber líklega hæst að hinn aldni höfðingi, Tim Duncan, er í liðinu. Þetta er í tíunda sinn sem Duncan er valinn í liðið og í fyrsta skipti í sex ár.
Meira
Mike Krzyzewski, betur þekktur sem Coach K, verður áfram þjálfari bandaríska landsliðsins í körfubolta en hann mun samkvæmt heimildum bandaríska fjölmiðla tilkynna þetta á blaðamannafundi í dag. Krzyz...
Meira
LeBron James var sem fyrr í aðalhlutverki þegar að Miami tók forystu gegn Indiana í úrslitarimmu Austurdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta.
Meira
Keflavík fann í kvöld arftaka Sigurðar Ingimundarsonar en félagið réð þá Bandaríkjamanninn Andy Johnston sem þjálfara karla- og kvennaliðs félagsins.
Meira
Kevin Durant, einn besti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta og leikmaður Oklahoma City, gaf eina milljón dollara til Rauða krossins vegna hamfarana í Oklahoma á dögunum.
Meira
Tony Parker var magnaður í mikilvægum sigri San Antonio á Memphis, 93-89, í framlengdum leik í lokaúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.
Meira
Kevin Johnson borgarstjóri Sacramento tilkynnti í gær að eigendur NBA körfuboltaliðsins Sacramento Kings hafa samþykkt að selja hugbúnaðarviðskiptajöfrinum Vivek Ranadive félagið.
Meira
Dirk Nowitzki þýska stórstjarna NBA körfuboltaliðsins Dallas Mavericks hyggst taka á sig verulega launalækkun næsta sumar í von um að lokka aðra stórstjörnu til liðsins.
Meira
Phil Jackson vann fjölmarga NBA-titla með bæði Michael Jordan (6) og Kobe Bryant (5) en hefur hingað til ekki verið mikið fyrir að bera þessa tvo stórbrotnu leikmenn saman eða fyrr en nú. Jackson ber ...
Meira
Sigurður Ingimundarson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur í Dominos-deild kvenna, verður ekki áfram þjálfari meistaraflokka Keflavíkur en hann þjálfaði einnig karlaliðið síðasta vetur. Þet...
Meira
Nýliðar Vals hafa styrkt sig með tveimur leikmönnum fyrir komandi tímabil í Dominos-deild karla í körfubolta en það eru þeir Oddur Birnir Pétursson og Oddur Ólafsson. Þetta kom fyrst fram á karfan.is ...
Meira
Falur Jóhann Harðarson, margfaldur Íslandsmeistari með Keflavík sem bæði leikmaður og þjálfari, er tekinn við sem formaður Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Meira